Til baka

Auðvelt

Auðvelt

Tómatar í ólífuolíu

Ljúffengir tómatar á sítrónudressingu, frábært meðlæti og líka gott ofan á ristað súrdeigsbrauð.

Vegan

Vegan

Sykurlaus

Sykurlaus

Mjólkurlaust

Mjólkurlaust

Egglaus

Egglaus

Glútenlaus

Glútenlaus

Hráefni
Hráefni
Tómatarnir

300g kirsuberjatómatar
2 paprikur, skornar í tvennt og fræhreinsaðar
2 dl ólífuolía
1 heill hvítlaukur, toppurinn skorinn af
10g ferskt timían
1 tsk sjávarsaltflögur

Ofan á

Ristaðar kasjúhnetur, saxaðar
1 msk sítrónuhýði

Þykk sítrónujógúrt

5 dl þykk jógúrt, t.d. Greek frá Sojade eða Skyr frá Sojade
safi og hýði af 1 meðalstórri sítrónu
1 msk ólífuolía
1/2 - 1 tsk sjávarsaltflögur
1/2 tsk chili mauk

Aðferð
Aðferð

Hitið ofninn í 180°C.

Skerið paprikurnar í ca 3x3 cm bita, setjið tómatana, paprikubitana, ólífuolíu, hvítlaukinn, ferskt timían og salt í passlega stórt eldfast form, og bakið í 15 mín með loki eða álpappír yfir, takið lokið af og haldið áfram að baka í 10-15 mín eða þar til paprikan er byrjuð að "brenna".

Á meðan grænmetið bakast, setjið grisju í sigti og jógúrtina þar í og látið leka af til að þykkja jógúrtina. Hrærið síðan út í hýði og safa af 1 sítrónu. Endið á að hræra út í chilimauki, sjávarsalti og ólífuolíu.

Þegar borið er fram, setjið jógúrtina á disk og dreifið aðeins úr henni, bætið tómötunum og paprikunni út á, kreistið bakaða hvítlaukinn yfir og skreytið með söxuðum ristuðum kasjúhnetum og sítrónuhýði og hellið eins miklu af olíunni út á og ykkur finnst girnilegt.

Berið fram eð góðu brauði, t.d. pítabrauði eða ristuðu súrdeigsbrauði, eða hafið sem meðlæti með góðum mat.

Viltu vita meira um Aðföng?

Aðföng er innkaupa- og dreifingarmiðstöð á smásölu- og stórnotendamarkaði. Starfsemi fyrirtækisins felst í innkaupum, birgðahaldi og dreifingu fyrir verslanir Bónus, Hagkaups, Olís og Stórkaups.