Til baka

Til baka

Til baka

Auðvelt

Auðvelt

Pizza með kartöflum og rabarbara

Pizza með kartöflum og rabarbara

Þessi pizza er rosalega góð! Það er hægt að búa til heimagerðan speltbotn, eða kaupa tilbúinn botn frá Stonefire (naanbrauðin sem fást í  kælinum í Hagkaup og Bónus). Ef þið eigið rabarbara í garðinum er tilvalið að nota hann á pizzuna, hann kemur á óvart. En ef þið eigið ekki rabarbara er hægt að skera niður þunnar eplasneiðar í staðinn.

Vegan

Vegan

Vegan

Ekkert hráfæði

Ekkert hráfæði

Ekkert hráfæði

Hráefni
Hráefni

1 pizzubotn, ca 25 cm í þvermál
100g rifinn ostur að eigin vali (t.d. violife fyrir vegan)
2 msk hvítlauksolía (ólífuolía með rifnum hvítlauk)
2 stórar kartöflur eða 3 minni, skornar í mjög þunnar sneiðar (best að nota mandolín eða ostaskera) 
1-2 msk ferskt rósmarín
1 rabarbaraleggur, skorinn í þunnar sneiðar
1 msk chipottle mauk (frá santa maria) eða chilimauk
1 tsk sjávarsaltflögur

Heimagerður speltbotn
250 g spelt , fínt og gróft til helminga
2-3 tsk lyftiduft
½ tsk sjávarsalt
1 tsk óreganó
2 msk jómfrúar ólífuolía
1,3 dl heitt vatn

Aðferð
Aðferð

Hitið ofninn í 200°C. 

Kaupið tilbúinn botn frá Stonefire eða bakið botn frá grunni (sjá hér að neðan). Ef þið gerið botninn frá grunni, er gott að byrja á honum og forbaka hann í nokkrar mínútur.

Blandið hvítlauksolíunni saman við rifna ostinn og smyrjið yfir pítsabotninn.

Því næst er þunnum kartöflusneiðunum raðað ofan á, rósmaríni stráð yfir og svo er pizzan sett inn í ofn og bökuð í 5-6 minútur.

Veltið rabarbarabitunum upp úr chipottle maukinu og dreifið yfir kartöflusneiðarnar og haldið áfram að baka pítsuna í ca 5-6 mínútur. 

Pizzan er tilbúin þegar kartöflurnar eru byrjaðar að taka á sig lit eða brenna aðeins i kantinn.

Blandið þurrefnum saman í skál, bætið svo olíunni og vatninu út í og hrærið með gaffli (deigið er heitt).

Hnoðið svo örstutt með fingrunum og fletjið út tvo þunna pizzubotna.

Forbakið botnana við u.þ.b. 190°C í 3 mínútur (fylgist með að brenni ekki við).

Viltu vita meira um Aðföng?

Aðföng er innkaupa- og dreifingarmiðstöð á smásölu- og stórnotendamarkaði. Starfsemi fyrirtækisins felst í innkaupum, birgðahaldi og dreifingu fyrir verslanir Bónus, Hagkaups, Olís og Stórkaups.