
Ljúffeng mandarínu og ólífuolíu kaka með mandarínusírópi.
Kakan
3/4 b ólífuolía
1/2 b eplamauk
1/2 b jurtamjólk
safi og hýði af 2 meðalstórum mandarínum
1 1/2 b hrásykur
2 b spelt
1 1/2 tsk lyftiduft
1/2 tsk matarsódi
1/2 tsk kardemommur, malaðar
1/2 tsk engiferduft
1 tsk sjávarsaltflögur
* b = bolli = 235ml
Mandarínusíróp
50 ml agavesíróp
120 ml mandarínusafi
Kakan
Setjið í hrærivél: ólífuolíu, eplamauk, jurtamjólk, safa og hýðið af mandarínum og hrásykur.
(Mandarínur: raspið fyrst hýðið af mandarínunum, skerið þær síðan í tvennt og pressið safann úr).
Blandið vel saman í hrærivélinni.
Sigtið spelt og látið í aðra skál ásamt lyftidufti, matarsóda, kardemommjm, engiferdufti og sjávarsalti, blandið saman.
Hellið þurrefnunum út í hrærivélina og blandið létt, svo deigið verði loftkennt. Ef of mikið er hrært þá verður kakan þyngri og klesstari, best að blanda ekki of mikið.
Setjið deigið í smurt form, um 26 cm í þvermál, bakið við 175°C í 40 mínútur.
Látið kólna og berið fram með mandarínusírópi.
Mandarínusíróp
Setjið allt í pott og látið suðuna koma upp, lækkið hitann og látið malla við vægan hita í 8-10 mínútur.







