Til baka

Auðvelt

Auðvelt

Kryddaður kjúklingabaunaréttur

Mildur og góður kjúklingabaunaréttur kryddaður á indverska vísu.

Sósan er gerð frá grunni og rétturinn er fljótlegur og barnvænn. Fyrir þau sem vilja sterkari útgáfu er upplagt að smakka til með örlitlum cayenne pipar eða chili.

(Ef þið eigið ekki öll kryddin er möguleiki að nota 1 msk garam masala í staðinn fyrir kóríander, cumin, túrmerik, kanil, pipar og kardimommur).

Gott að bera fram með hrísgrjónum, raitu og naan brauði.

Vegan

Vegan

Mjólkurlaust

Mjólkurlaust

Egglaus

Egglaus

Hráefni
Hráefni

2 msk ólífuolía
2 stk laukur, saxaður
6 hvítlauksrif, söxuð
4 tsk engiferskot
1 tsk sjávarsalt
1 tsk kóríander, malaður
1 tsk cumin, malað (broddkúmen..ekki kúmen)
1/2 tsk túrmerik
1/2 tsk kanill
1/4 tsk svartur pipar
1/8 tsk malaðar kardimommur
1 dl tómatpassata eða maukaðir tómatar
1 dl kókosmjólk
1 msk sítrónusafi
2 krukkur kjúklingabaunir
ferskur kóríander til að strá yfir
ef vill: 1 msk mangó chutney (má sleppa)

Aðferð
Aðferð

Steikið lauk í olíu á pönnu í nokkrar mínútur. Þegar laukurinn hefur tekið lit má bæta hvítlauknum á pönnuna og svo öllu kryddinu (engiferskot, sjávarsalt, kóríander, cumin, túrmerik, kanill, svartur pipar og kardimommur) og leyfið að hitna í skamma stund (ekki brenna).

Takið nú kryddaða laukinn af pönnunni og maukið í blandara eða matvinnsluvél, ásamt tómatpassata, kókosmjólk og sítrónusafa. Blandið þar til orðið að silkimjúkri sósu.

Hellið nú sósunni ásamt kjúklingabaununum aftur á pönnuna og leyfið aðeins að malla. (Bætið 1 msk af mangó chutney út í ef þið eigið það til og viljið nota, en má sleppa).

Berið til dæmis fram með hrísgrjónum, naan brauði og raitu og stráið ferskum kóríander yfir, ef vill.

Ef þið viljið hafa pottréttinn sterkari er alltaf hægt að smakka til með smávegis af chili eða cayenne pipar.

Viltu vita meira um Aðföng?

Aðföng er innkaupa- og dreifingarmiðstöð á smásölu- og stórnotendamarkaði. Starfsemi fyrirtækisins felst í innkaupum, birgðahaldi og dreifingu fyrir verslanir Bónus, Hagkaups, Olís og Stórkaups.