
Bragðgott og hátíðlegt rauðkál
500g rauðkál
4 lífræn epli
2 mandarínur, afhýddar
1-2 msk hrásykur eða 4-5 döðlur
1 msk sítrónusafi
2 msk engiferskot
smá sjávarsalt
Skerið rauðkálið í frekar þunna strimla og setjið í pott.
Afhýðið eplin og skerið í bita og bætið út í pottinn.
Afhýðið mandarínurnar, og setjið rifin út í ásamt sykri/döðlum, sítrónusafa, engifer og sjávarsalti.
Hrærið í og merjið mandarínurifin til að fá vökva.
Látið suðuna koma upp. Hrærið reglulega í og látið sjóða við vægan hita í 30 mín.





