Til baka

Til baka

Til baka

Auðvelt

Auðvelt

Appelsínu muffins

Appelsínu muffins

Í þessar muffins notum við útbleytt chiafræ í staðinn fyrir egg. Chiafræin dreifast um allt svo kökurnar verða doppóttar að innan,  minna pínulítið á poppyseeds eins og eru stundum í svona amerískum muffins.
Áferðin er góð, stökkar efst og mjúkar innan í og ríkulegt appelsínubragð.

Vegan

Vegan

Vegan

Sykur

Sykur

Mjólkurlaust

Mjólkurlaust

Mjólkurlaust

Egglaus

Egglaus

Egglaus

Hráefni
Hráefni

1 dl vatn + 2 msk chiafræ
hýðið af einni appelsínu
6 msk ferskur appelsínusafi  (safi úr 1 stórri eða 2 litlum - best að mæla í msk) 
1 dl jurtamjólk (t.d. hafra eða möndlu)
2 msk jómfrúarólífuolía
1 ½ dl hrásykur 
1 tsk vanilludropar 
3 dl spelt
1 ½ dl kókosmjöl
½ tsk matarsódi
1 tsk lyftiduft
¼ tsk sjávarsaltflögur

Aðferð
Aðferð

Nokkru áður en baksturinn hefst er gott að byrja á því að setja 1 dl vatn og 2 msk chiafræ saman í krukku (eða skál) og blanda saman og láta standa í minnst 15 mín. (Þetta er í rauninni chiagrautur). Má líka alveg gera daginn áður og geyma í ísskápnum í lokuðu íláti. 

Forhitið ofninn í 175°C og hafið muffinsformin tilbúin. Gott er að setja pappaform í muffinsformin, eða smyrja með olíu.

Raspið hýðið af einni appelsínu (eða tveim ef þær eru litlar), gott að muna að hafa bara ysta lagið með, ekki þetta hvíta sem gefur beiskt bragð. Kreistið safann úr appelsínunni (eða tveim ef mjög litlar) þar til þið hafið fengið 6 msk af safa. 

Blandið saman í eina skál appelsínusafanum, appelsínuhýðinu, útbleyttum chiafræjunum, jurtamjólk, ólífuolíu, hrásykri og vanilludropum. 

Blandið þurrefnum saman í aðra skál: spelt, kókosmjöl, matarsódi, lyftiduft, sjávarsalt.

Hrærið þurrefnunum létt út í hina skálina. Ekki hræra of mikið, bara nóg til að allt blandist vel saman í graut.

Hellið í u.þ.b. 12 muffinsform og setjið inn í 175°C heitan ofn, í miðjuna. Bakið í 25-30 mín (í okkar ofni er 27 mín yfirleitt fullkomið, en ofnar geta verið örlítið misjafnir). Fylgist með síðustu 10 mín, ef kökurnar eru að verða of dökkar má setja plötuna neðar í ofninn síðustu mínúturnar.

Viltu vita meira um Aðföng?

Aðföng er innkaupa- og dreifingarmiðstöð á smásölu- og stórnotendamarkaði. Starfsemi fyrirtækisins felst í innkaupum, birgðahaldi og dreifingu fyrir verslanir Bónus, Hagkaups, Olís og Stórkaups.