Auðvelt
Þessi pizza er rosalega góð! Það er hægt að búa til heimagerðan speltbotn, eða kaupa tilbúinn botn frá Stonefire (naanbrauðin sem fást í kælinum í Hagkaup og Bónus). Ef þið eigið rabarbara í garðinum er tilvalið að nota hann á pizzuna, hann kemur á óvart. En ef þið eigið ekki rabarbara er hægt að skera niður þunnar eplasneiðar í staðinn.
1 pizzubotn, ca 25 cm í þvermál
100g rifinn ostur að eigin vali (t.d. violife fyrir vegan)
2 msk hvítlauksolía (ólífuolía með rifnum hvítlauk)
2 stórar kartöflur eða 3 minni, skornar í mjög þunnar sneiðar (best að nota mandolín eða ostaskera)
1-2 msk ferskt rósmarín
1 rabarbaraleggur, skorinn í þunnar sneiðar
1 msk chipottle mauk (frá santa maria) eða chilimauk
1 tsk sjávarsaltflögur
Heimagerður speltbotn
250 g spelt , fínt og gróft til helminga
2-3 tsk lyftiduft
½ tsk sjávarsalt
1 tsk óreganó
2 msk jómfrúar ólífuolía
1,3 dl heitt vatn
Hitið ofninn í 200°C. Kaupið tilbúinn botn frá Stonefire eða bakið botn frá grunni (sjá hér að neðan). Ef þið gerið botninn frá grunni, er gott að byrja á honum og forbaka hann í nokkrar mínútur.
Blandið hvítlauksolíunni saman við rifna ostinn og smyrjið yfir pítsabotninn.
Því næst er þunnum kartöflusneiðunum raðað ofan á, rósmaríni stráð yfir og svo er pizzan sett inn í ofn og bökuð í 5-6 minútur.
Veltið rabarbarabitunum upp úr chipottle maukinu og dreifið yfir kartöflusneiðarnar og haldið áfram að baka pítsuna í ca 5-6 mínútur. Pizzan er tilbúin þegar kartöflurnar eru byrjaðar að taka á sig lit eða brenna aðeins i kantinn.
Blandið þurrefnum saman í skál, bætið svo olíunni og vatninu út í og hrærið með gaffli (deigið er heitt).
Hnoðið svo örstutt með fingrunum og fletjið út tvo þunna pizzubotna.
Forbakið botnana við u.þ.b. 190°C í 3 mínútur (fylgist með að brenni ekki við).