Fyrir uppskrift að heimagerðu rauðkáli eða sveppasósu, kíkið undir "árstíðirnar"
Auðvelt
Klassísk hnetusteik, frábær valkostur á hátíðarborðið.
225g rauðar linsur, ósoðnar
700 ml vatn
2 hvítlauksrif, pressuð
2 tsk currypaste (Pataks)
2 tsk grænmetiskraftur
300g kasjúhnetur, þurrristaðar og malaðar
300g heslihnetur, þurrristaðar og malaðar
1 meðalstór sæt kartafla (uþb 400g), afhýdd og skorin í 2x2 cm bita
1/2 sellerírót (uþb 250g), afhýdd og skorin í 2x2 cm bita
1 tsk rósmarín
1 tsk laukduft
1 tsk salt
1 msk ólífuolía
2 msk ólífuolía
1 laukur, smátt skorinn
3 hvítlauksrif, pressuð
250g sveppir, skornir í sneiðar
2 gulrætur, rifnar á rifjárni
4 msk tómatpúrra
2-3 msk mangó chutney
1 tsk grænmetiskraftur
1 1/2 timían
1/2 tsk salvía
1 tsk sjávarsaltflögur
1/4 tsk cayenne pipar
Skolið rauðu linsurnar og setjið í pott með vatni, hvítlauk, currypaste og grænmetiskrafti. Látið suðuna koma upp og sjóðið í um 20 mín eða þar til linsurnar eru soðnar.
Á meðan linsurnar eru að sjóða, ristið hneturnar i ofninum 170°C í 6-8 mín eða þar til tilbúnar. Best er að rista 1 tegund í einu. Kælið og malið síðan í matvinnsluvél.
Skerið sætukartöflurnar og sellerírótina í 2x2 bita og setjið í ofnskúffu, kryddið með rósmarín, laukdufti og salti, skvettið 1 msk olíu yfir og bakið í ofni við 200°C í 18-20 mín. Látið kólna þegar búið að baka.
Hitið 2 msk olíu á pönnu og mýkið lauk og hvítlauk, bætið sveppunum við og látið steikjast í um 5 mínútur, léttsaltið. Látið kólna.
Setjið allt í skál, linsurnar, hneturnar, bakaða grænmetið, laukinn og sveppina og restina af uppskriftinni og hrærið saman.
Klæðið brauðform með bökunarpappír, við notuðum 11x24 cm form. Setjið deigið í, lokið með álpappír eða álíka yfir og bakið við 180°C í 40 mín.
Takið lokið/álpappírinn af og steikina úr forminu, hvolfið henni á ofnplötu og klárið að baka í 10-15 mín.
Hnetusteikin þarf að standa í alla vega 10 mínútur áður en hún er skorin.
Okkur finnst frábært að búa steikina til deginum áður, baka hana og kæla svo og geyma í ísskáp. Daginn sem hún er borðuð skerum við steikina í sneiðar og bökum sneiðarnar í ofninum í 10 mín á hvorri hlið.







