Til baka

Auðvelt

Gulrætur og kjúklingabaunir

Gulrætur og kjúklingabaunir

Heilbakaðar gulrætur og kjúklingabaunir með fetaþeytingi eða hummus

Hráefni
Hráefni
Gulræturnar

300g gulrætur
1 tsk sambal olek frá Santa Maria
1⁄2 tsk sjávarsaltflögur
1-2 msk ólífuolía

Feta þeytingur

50g grísk jógúrt
100g fetaostur
safi og hýði af 1 sítrónu
1-2 msk ferskt timían

Kjúklingabaunirnar

1 msk ólífuolía
2 msk tómatpúrra
1⁄2 msk sambal olek frá Santa Maria
1⁄2 tsk sjávarsaltflögur
250g soðnar kjúklingabaunir

grænt pestó frá Himneskt

Aðferð
Aðferð
Gulrætur

Snyrtið endana á gulrótunum. Skerið stærstu gulræturnar í tvennt, en leyfið þeim minni að vera heilum. Veltið síðan gulrótum upp úr sambal, olíu og salti.
Bakið í ofni við 190°C i 30-35 mín.

Fetaþeytingur

Setjið gríska jógúrt í hrærivél ásamt fetaostinum sem þið myljið í skálina og svo restina af uppskriftinni. Þeytið þar til þetta er orðið kekklaust. Í staðinn fyrir fetaþeyting er líka hægt að nota góðan hummus.

Kjúklingabaunir

Hitið olíuna á pönnu, bætið tómatpúrrunni út í og steikið hana í 1-2 mín, bætið þá sambal olek út á og haldið áfram að steikja í 1-2 mín í viðbót. Endið á að setja kjúklingabaunirnar út á og blandið þessu saman og látið malla í 3-4 mín eða þar til vel heitt.

Samsetning

Smyrjið fetaþeyting eða hummus á stóran disk. Raðið gulrótunum ofan á, hellið kjúklingabaununum yfir og berið fram með grænu pestó frá Himneskt.