Till baka
Till baka
Till baka
Till baka
26. maí 2025
Sjálfbærniskýrsla Aðfanga fyrir árið 2024

Aðföng leggja metnað í að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif starfseminnar. Nú liggur fyrir þriðja sjálfbærniskýrsla Aðfanga en þar má lesa um sjálfbærnivegferð Aðfanga árið 2024, markmið og árangur.

Losun gróðurhúsalofttegunda í umföngum 1 og 2 dróst saman
Losun Aðfanga í umföngum 1, 2 og 3 nam 87.890 tonnum CO2-ígilda á árinu 2024. Losun gróðurhúsalofttegunda í umföngum 1 og 2 dróst saman um 16% milli ára. Þar af minnkaði losun vegna leka af kælikerfum um 30%, losun vegna eldsneytisnotkunar um 3% og losun vegna orkunotkunar um 8%. Rafvæðing sendibifreiða er þegar hafin hjá Aðföngum og voru prófanir gerðar með stærri rafmagnsvörubíla á síðasta ári.
Flokkunarhlutfall félagsins var 81,3% á árinu 2024
Aðföng hafa markvisst unnið að því að auka flokkun á starfsstöðvum sínum á síðustu árum með það að markmiði að hámarka endurvinnslu- og endurnýtingarmöguleika hvers flokks hjá söfnunar- og úrgangsmeðhöndlunaraðilum. Til að auðvelda starfsfólki úrvinnslu og flokkun er notast við merkingarkerfi FENÚR. Þetta hefur skilað sér í frábærum árangri Aðfanga í úrgangsmálum. Flokkunarhlutfall félagsins var 81,3% á árinu 2024 og endurheimtingarhlutfall úrgangs var 95,5%
FENÚR merkingakerfið markvisst notað
Þá hafa Aðföng jafnframt unnið að því að merkja umbúðir vara undir vörumerkjum sínum, t.d. Himneskt, Íslandsnaut og Euro Shopper, skv. FENÚR merkingakerfinu. Merkingarnar auðvelda neytendum að flokka umbúðir rétt, hvort heldur sem er á heimilum eða grenndarstöðvum.

Viltu vita meira um Aðföng?
Aðföng er innkaupa- og dreifingarmiðstöð á smásölu- og stórnotendamarkaði. Starfsemi fyrirtækisins felst í innkaupum, birgðahaldi og dreifingu fyrir verslanir Bónus, Hagkaups, Olís og Stórkaups.