Til baka

Til baka

Content

Vegan sörur

Þessar smákökur eru innblásnar af sörum.

Þessar smákökur eru innblásnar af sörum, en innihalda þó hvorki egg né mjólkurvörur og eru því alls ekki eins, en samt frekar góðar.

Hráefnið fyrir 4
Kremið

260g vegan smjörlíki (t.d. Earth Balance), kalt
150g flórsykur eða malaður lifrænn hrásykur
1/2 tsk instant kaffiduft
25g kakóduft

Botninn

2 bollar möndlumjöl eða fínt malaðar möndlur
1/2 bolli agavesíróp
2 msk möndlusmjör
1/2 tsk vanilla
smá sjávarsalt

Hjúpurinn

300g sökkt súkkulaði

Aðferð
Kremið

Malið hrásykurinn fínt í matvinnsluvél / blandara /kryddkvörn til að fá svipaða áferð og flórsykur (eða notið flórsykur). Gott að skella instant kaffiduftinu með í lokin, þá malast það fínna í leiðinni.

Best er að taka vegan smjörið beint úr kælinum og skera í bita.

Setjið kalt smjör, malaðan sykur og kaffiduft og kakóduft í hrærivél og þeytið með þeytara. (Hægt að nota matvinnsluvél ef þið eigið ekki hrærivél).

Setjið kremið í ílát og geymið í kæli eða frysti. (Gott að setja í frystinn svo það kólni hratt ef þið ætlið að útbúa sörurnar strax).

Botninn

Hrærið allt hráefnið saman í hrærivél með hrærispaða ar til allt hefur blandast saman, í ca 2-3 mínútur.

Gott að rúlla deigið í pulsur og skera svo passlega bita til að setja á ofnpötu. Passið að hafa botnana ekki of þykka.

Bakið botnana í forhituðum ofni við 180°C í ca 6 mínútur.

Fylgist vel með til að ofbaka ekki, botnarnir eiga ekki að brúnast, við viljum ekki hafa þá of stökka.

Leyfið botnunum að kólna á kæligrind og setjið svo í viskastykki og inn í kæli til að botnarnir séu kaldir þegar kalt kremið er sett á og kökurnar hjúpaðar í súkkulaði.

Vörur í uppskrift
Þú finnur vörurnar okkar í búðum
Þú finnur vörurnar okkar í búðum
Þú finnur vörurnar okkar í búðum