Til baka

Content

Tómatar í ólífuolíu

Ljúffengir tómatar á sítrónudressingu, frábært meðlæti og líka gott ofan á ristað súrdeigsbrauð.

Ljúffengir tómatar á sítrónudressingu, frábært meðlæti og líka gott ofan á ristað súrdeigsbrauð.

Hráefnið fyrir 4
Tómatarnir

300g kirsuberjatómatar
2 paprikur, skornar í tvennt og fræhreinsaðar
2 dl ólífuolía
1 heill hvítlaukur, toppurinn skorinn af
10g ferskt timían
1 tsk sjávarsaltflögur

Ofan á

Ristaðar kasjúhnetur, saxaðar
1 msk sítrónuhýði

Þykk sítrónujógúrt

5 dl þykk jógúrt, t.d. Greek frá Sojade eða Skyr frá Sojade
safi og hýði af 1 meðalstórri sítrónu
1 msk ólífuolía
1/2 - 1 tsk sjávarsaltflögur
1/2 tsk chili mauk

Aðferð

Hitið ofninn í 180°C.

Skerið paprikurnar í ca 3x3 cm bita, setjið tómatana, paprikubitana, ólífuolíu, hvítlaukinn, ferskt timían og salt í passlega stórt eldfast form, og bakið í 15 mín með loki eða álpappír yfir, takið lokið af og haldið áfram að baka í 10-15 mín eða þar til paprikan er byrjuð að "brenna".

Á meðan grænmetið bakast, setjið grisju í sigti og jógúrtina þar í og látið leka af til að þykkja jógúrtina. Hrærið síðan út í hýði og safa af 1 sítrónu. Endið á að hræra út í chilimauki, sjávarsalti og ólífuolíu.

Vörur í uppskrift
Þú finnur vörurnar okkar í búðum
Þú finnur vörurnar okkar í búðum
Þú finnur vörurnar okkar í búðum