Til baka

Til baka

Content

Súkkulaði-bananamuffins


Mjúkar muffins með góðu súkkulaði- og bananabragði.

Í þessar ljúffengu banana og súkkulaðimuffins notum við chiafræ í staðinn fyrir egg og það kemur svona ljómandi vel út. Uppskriftin er virkilega góð, þrátt fyrir að vera án eggja og mjólkur.

Kökurnar eru mjúkar og hafa gott súkkulaði og bananabragð. Ef þið eruð mikið fyrir súkkulaði getið þið brætt smá súkkulaði til að setja ofan á kökurnar þegar þær eru tilbúnar. Eða hrært í smá glassúr.

Hráefnið fyrir 4

2 tsk chiafræ, möluð í kryddkvörn + 3 msk heitt vatn ("chiaegg")
2 bollar (250g) spelt, t.d. fínt og gróft til helminga
1/2 bolli (45g) kakóduft
1 bolli (200g) hrásykur
3 tsk lyftiduft
1/2 tsk sjávarsalt
400g bananar (3-4 stk án hýðis), skornir í sneiðar
1/2 bolli (120ml) jurtamjólk
3 msk kókosolía
Ef vill: 100g súkkulaði eða hnetur, smátt saxað

Aðferð

Hitið ofninn í 180°C (ekki blástur).

Malið chiafræin í kryddvörn eða blandara og hrærið vatninu svo út í.

Blandið þurrefnunum saman í skál.

Setjið banana, jurtamjólk og kókosolíu í blandara og blandið saman, passið að blanda ekki of mikið.

Hellið bananablöndunni og chia blöndunni út í skálina með þurrefnunum og hrærið saman.

Í lokin má hræra söxuðu súkkulaði eða hnetum út í ef vill (má sleppa).

Smyrjið muffinsform eða setjið pappaform í muffinsformin. Gott er að nota ískúluskeið til að setja deigið í formin, en annars dugar venjuleg skeið líka. Passið að setja ekki of mikið í hvert form því kökurnar lyftast.

Gefur u.þ.b. 18-20 muffins.

Bakið við 180°C í 20-23 mín.

Gott að taka muffinsin úr forminu og leyfa að kólna aðeins áður en borið fram.

Vörur í uppskrift
Þú finnur vörurnar okkar í búðum
Þú finnur vörurnar okkar í búðum
Þú finnur vörurnar okkar í búðum