Til baka

Til baka

Content

Rauðrófuloka

Ljúffeng samloka með rauðrófum, rifnu tófú og hrásalati. Kemur á óvart!

Ljúffeng samloka með rauðrófum, rifnu tófú og hrásalati. Kemur á óvart!

Hráefnið fyrir 4
Rauðrófuloka fyrir tvo

250g forsoðnar rauðrófur
150g tófú
100ml bbq sósa
1 tsk tamari sósa
200g hvítkálssalat
4 msk tófúmæjó
2 hamborgarabrauð

Tófú mayo

200g tófú
75 ml avókadóolía
1 msk sítrónusafi
1 tsk eplaedik
1 tsk agavesýróp
½ tsk sinnep
½ tsk sjávarsalt flögur

Hvítkálssalat

150g rifið hvítkál
50g rifnar gulrætur
1 grænt lífrænt epli, kjarnhreinsað og rifið
20g smátt skorin sýrðar gúrkur
1 dl tófú mayo


Aðferð

Hitið ofninn í 200°C og setjið bökunarpappír á ofnskúffu.

Rífið 150g tófu niður með rifjárni og setjið í skál ásamt 1 tsk tamari sósu.

Rífið forsoðnar rauðrófurnar og setjið í sömu skál og tófúið, hellið bbq sósunni yfir og blandið þannig að sósan þeki vel rauðrófurnar og tófúið. (Þið fáið forsoðnar, vakúmpakkaðar rauðrófur í grænmetiskælinum).
Dreifið þessu á ofnskúffu og bakið í 10-15 mín við 200°C. Hrærið eftir 5 mín.

Búið til tófú mayo og hvítkálssalat.

Setjið hamborgarabrauðið á pönnu með sárið niður til að rista það, ath að það er líka hægt að setja inn í ofn, passið bara að brenni ekki.

Smyrjið brauðið með tófúmayo í botninn, setjið vænan slatta af rauðrófum/tófú þar ofan á, síðan hrásalat og endið á að smyrja toppinn og lokið.

Njótið.

Tófú mayo

Létt kreistið vatnið úr tófúinu með eldhúspappir eða viskastykki.

Skerið tófúið í bita og setjið í blandara ásamt restinni af uppskriftinni og blandað þar til alveg kekklaust.

Vörur í uppskrift
Þú finnur vörurnar okkar í búðum
Þú finnur vörurnar okkar í búðum
Þú finnur vörurnar okkar í búðum