Til baka

Content
Rauðrófu muffins
Þessar ljúffengu bollakökur er tilvalið að baka um helgina.
Hráefnið fyrir 4
Muffins
3 bollar spelt
3 msk maísmjöl
1 3/4 bolli hrásykur
2 msk kakó
1 tsk sjávarsalt
2 tsk matarsódi
2/3 bolli olía
1 bolli vatn
1 bolli soðnar rauðrófur, skornar í bita (hægt að nota forsoðnar)
1 tsk vanilludropar
Krem
200g vegan smjör eða smjör
1 tsk sítrónusafi
2 tsk vanilludropar
1/4 tsk sjávarsalt
400g flórsykur
Aðferð
Muffins
Hitið ofninn í 180°C
Setjið þurrefnin í skál og blandið vel saman.
Setjið olíu, vatn, rauðrófur, eplaedik og vanilludropa í blandara og maukið vel saman.
Hellið rauðrófublöndunni saman við þurrefnablönduna og hrærið saman.
Smyrjið muffinsform og setjið deigið í, þetta gera ca 20 muffins.
Bakið við 180°C í 25 min.
Kælið áður en kremið er sett á.
Krem
Skerið smjörið í litla bita og setjið í hrærivél og hrærið í 2 mín, bætið sítrónusafa, vanilludropum og sjávarsalti út í, hrærið í 1 mín í viðbót.
Sigtið flórsykurinn út í og hrærið þar til allt hefur blandast vel og er orðið að léttu og girnilegu kremi.
Smyrjið ofan á muffinsin.
Vörur í uppskrift
Fleiri uppskriftir

Ribeye
Það er ekkert eins gott og vel eldað ribeye, hér er uppskrift að ribeye sem kitlar bragðlaukana.

Hakk og spagettí
Við kynnum fyrsta flokks íslenskt nautakjöt frá Íslandsnauti – fullkomnað með dásamlegri spagettí uppskrift Íslandsnaut býður aðeins fyrsta flokks íslenskt nautakjöt.

Smash style borgari
Smash hamborgarar hafa notið mikilla vinsælda og bjóða upp á bragðmikla útgáfu af hefðbundnum hamborgara.

