Til baka

Til baka

Content

Rabarbara desert

Ef þið eigið rabarbara í garðinum er upplagt að nýta hann í ljúffengan eftirrétt.

Ef þið eigið rabarbara í garðinum er upplagt að nýta hann í ljúffengan eftirrétt, með haframjöli, spelti og möndlum.

Hráefnið fyrir 4
Rabarbaralag

300 - 400 g rabarbari (u.þ.b)
¾ dl hrásykur
1 vanillustöng, skorin í tvennt eða 
1 tsk vanilludropar

Mulningur

75g spelt
100g haframjöl/tröllahafrar
60g möndlur, malaðar eða saxaðar
70g hrásykur
1 tsk kanill
¾ tsk sjávarsalt
¾ dl kókosolía
1 msk ólífuolía

Aðferð

Skerið rabarbarann í þunnar sneiðar og setjið í botninn á eldföstu móti ásamt sykri og vanillu. Látið standa á meðan deigið er útbúið. (Heyrst hefur að sælkerar hafi prófað að bæta söxuðu súkkulaði við rabarbarablönduna.. ekki getur það skemmt fyrir). 

Blandið öllu saman í skál og hnoðið þar til klístrast. Ef deigið er of þurrt má bæta örlítilli auka ólífuolíu útí. Setjið deigið ofan á rabarbarann.

Bakið við 165°C í 30 mín, eða þar til rabarbarinn er orðinn mjúkur og mulningurinn gylltur.  Berið fram með góðum ís eða þeyttum hafrarjóma eða ykkar uppáhalds rjóma.

Vörur í uppskrift
Þú finnur vörurnar okkar í búðum
Þú finnur vörurnar okkar í búðum
Þú finnur vörurnar okkar í búðum