Til baka

Content
Pastasalat
Vorlegt pastasalat með grænmeti og heilhveiti penne
Hráefnið fyrir 4
Pastasalat
250g heilhveiti eða spelt penne
100g agúrkur, skornar í 1x1 cm bita
100g kirsuberjatómatar, skornir í tvennt
100g soðnar kjúklingabaunir
50g fetaostur, t.d. vegan
nokkrar ólífur
25g rúkóla
15g graslaukur, saxaður
15g ferskt basil, blöðin notuð
50g ristaðar hnetur að eigin vali
Dressing
½ dl ólífuolía
3 msk sítrónusafi
1 tsk sinnep
2-3 hvítlauksrif
1 tsk ítölsk kryddblanda
1 tsk sjávarsaltflögur
¼ tsk chiliflögur
Aðferð
Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningunum á pakkanum, þegar það er soðið er best að kæla það alveg.
Á meðan pastað er að sjóða, setjið allt sem á að fara í dressinguna í krukku með loki og hristið saman.
Skerið svo grænmetið og finnið allt til í salatið.
Setjið kælt pastað í skál ásamt restinni af uppskriftinni og hellið olíunni yfir.
Vörur í uppskrift
Fleiri uppskriftir

Ribeye
Það er ekkert eins gott og vel eldað ribeye, hér er uppskrift að ribeye sem kitlar bragðlaukana.

Hakk og spagettí
Við kynnum fyrsta flokks íslenskt nautakjöt frá Íslandsnauti – fullkomnað með dásamlegri spagettí uppskrift Íslandsnaut býður aðeins fyrsta flokks íslenskt nautakjöt.

Smash style borgari
Smash hamborgarar hafa notið mikilla vinsælda og bjóða upp á bragðmikla útgáfu af hefðbundnum hamborgara.

