Til baka

Content
Parmesan smákökur
Ekki þurfa allar smákökur að vera sætar.
Í nóvember og desember finnst mörgum gott að gæða sér á smákökum og hafa það notalegt. En ekki þurfa allar smákökur að vera sætar. Hér höfum við dýrindis smákökur með parmesan og púrrulauk, heslihnetum og sinnepi sem eru algjörlega ómótstæðilegar.
Hráefnið fyrir 4
115g parmesan eða vegan parmesan, rifinn
1 dl púrrulaukur eða vorlaukur
100g lífrænt spelt
50g heslihnetur
1 msk lífrænt gróft sinnep
75g smjör eða vegan smjör
1/2tsk sjávarsaltflögur
Aðferð
Saxið heslihneturnar gróft og þurristið á pönnu.
Skerið púrrulaukinn eða vorlaukinn smátt.
Rífið ostinn og setjið í hrærivélaskál og bætið restinni af uppskriftinni út í og látið hnoðast saman. (Gott að nota annað hvort hrærivél eða matvinnsluvél með hnoðara).
Rúllið lengju úr deiginu og hafið ca 2 cm í þvermál, setjið inn í kæli í 1 klst, má líka vera yfir nótt.
Hitið ofninn í 180°C og setjið bökunarpappír á ofnskúffu. Skerið deigið í um 1/2 cm sneiðar, raðið á ofnskúffuna og bakið í 10 mín. Hafið augun á smákökunum síðustu 2 mín og passið að þær brenni ekki.
Látið kólna á grind.
Vörur í uppskrift
Fleiri uppskriftir

Ribeye
Það er ekkert eins gott og vel eldað ribeye, hér er uppskrift að ribeye sem kitlar bragðlaukana.

Hakk og spagettí
Við kynnum fyrsta flokks íslenskt nautakjöt frá Íslandsnauti – fullkomnað með dásamlegri spagettí uppskrift Íslandsnaut býður aðeins fyrsta flokks íslenskt nautakjöt.

Smash style borgari
Smash hamborgarar hafa notið mikilla vinsælda og bjóða upp á bragðmikla útgáfu af hefðbundnum hamborgara.

