Til baka

Content
Linsusúpa með engifer
Ljúf súpa sem er tilvalið að njóta þegar kólna fer í veðri
Ljúf súpa sem er tilvalið að njóta þegar kólna fer í veðri
Hráefnið fyrir 4
1 msk ólífuolía
1 laukur, saxaður
2 hvítlauksrif, pressuð
½ tsk túrmerik
½ - 1 tsk broddkúmen (cumin)
1 ½ msk engiferskot
250 g gulrætur eða sætar kartöflur eða grasker, brytjað
250 g rauðar linsur (½ poki)
1 lítri vatn
1 msk grænmetiskraftur
1 ½ msk sítrónusafi
½ tsk sjávarsaltflögur
salt og pipar til að smakka til
graskersfræ – ristuð og söltuð
ef vill: 1 búnt kóríander, saxað
Aðferð
Mýkið lauk og hvítlauk í ólífuolíu í u.þ.b. 5 mínútur í pottinum ásamt túrmerik, broddkúmeni og engiferskoti. Bætið svo gulrótum og linsum út í.
Hellið vatni ásamt grænmetiskrafti út í. Látið suðuna koma upp, lækkið undir og leyfið að malla í u.þ.b. 20 mín.
Blandið súpuna annað hvort í matvinnsluvél, eða með töfrasprota beint ofan í pottinn.
Bætið nú sítrónusafa, salti og pipar út í. Smakkið til með meiri sítrónusafa, salti og ólífuolíu ef vill. Einnig má bæta meira engiferskoti út í ef þið viljið að súpan rífi aðeins í.
Stráið ristuðum graskersfræjum og söxuðum ferskum kóríander yfir hvern skammt og berið fram með góðu brauði.
Vörur í uppskrift
Fleiri uppskriftir

Ribeye
Það er ekkert eins gott og vel eldað ribeye, hér er uppskrift að ribeye sem kitlar bragðlaukana.

Hakk og spagettí
Við kynnum fyrsta flokks íslenskt nautakjöt frá Íslandsnauti – fullkomnað með dásamlegri spagettí uppskrift Íslandsnaut býður aðeins fyrsta flokks íslenskt nautakjöt.

Smash style borgari
Smash hamborgarar hafa notið mikilla vinsælda og bjóða upp á bragðmikla útgáfu af hefðbundnum hamborgara.

