Til baka

Content
Kúrekakássa
Einföld máltíð sem er sniðug þegar við viljum eitthvað fljótlegt en gott. Til dæmis tilvalið að græja í útilegu yfir prímusnum. Gott að bera fram með góðu brauði, t.d. naan brauði, pítubrauði eða í vefju.
Hráefnið fyrir 4
ólífuolía til að steikja upp úr (t.d. olíuna af grilluðu paprikunum)
1 rauðlaukur, afhýddur og skorinn í sneiðar
5 hvítlauksrif, pressuð eða söxuð
2 msk tómatpúrra
1 krukka grilluð paprika í ólífuolíu frá Ítalía, bæði paprikan og hluti af olíunni
1 krukka soðnar kjúklingabaunir
10 kirsuberjatómatar, skornir í tvennt
1 tsk sjávarsaltflögur
1 tsk cuminduft
½ tsk reykt paprikukrydd
½ tsk chiliflögur
nokkur mintulauf eða annað ferskt krydd
Aðferð
Uppáhalds grilluðu paprikurnar okkar eru frá Ítalía, merki sem fæst í Bónus og Hagkaup.
Byrjið á að sigta olíuna frá grilluðu paprikunni. Við notum olíuna til að steikja upp úr og paprikuna í réttinn.
Hitið olíuna á pönnu, steikið lauk og hvítlauk þar til liturinn verður gullinn, eða í um 5-8 mínútur.
Bætið tómatpúrrunni út á og leyfið að malla í 1 mín.
Setjið grilluðu paprikuna, kjúklingabaunirnar, kirsuberjatómatana og kryddið út á og látið malla saman í 5-6 mínútur.
Grófsaxið mintulaufin og bætið út á og berið fram. Mjög gott með naan brauði eða pítubrauði eða vefju.
Ef þið ætlið að galdra þennan rétt fram í útilegu er sniðugt að mæla kryddin heima, blanda saman og setja í litla krukku til að taka með.
Vörur í uppskrift
Fleiri uppskriftir

Ribeye
Það er ekkert eins gott og vel eldað ribeye, hér er uppskrift að ribeye sem kitlar bragðlaukana.

Hakk og spagettí
Við kynnum fyrsta flokks íslenskt nautakjöt frá Íslandsnauti – fullkomnað með dásamlegri spagettí uppskrift Íslandsnaut býður aðeins fyrsta flokks íslenskt nautakjöt.

Smash style borgari
Smash hamborgarar hafa notið mikilla vinsælda og bjóða upp á bragðmikla útgáfu af hefðbundnum hamborgara.

