Til baka

Content
Jóla ostakaka
Þessi jólalega ostakaka er dásamleg í desember
Þessi jólalega ostakaka er dásamleg í desember
Hráefnið fyrir 4
Botninn
250g piparkökur
75g smjör, t.d. vegan, skorið í litla teninga
Fyllingin
150g kasjúhnetur, lagðar í bleyti í amk 2 klst
200g rjómaostur, t.d. vegan
250g kókosmjólk (setjið inn í ísskáp í 2 klst og notið þykka hvíta hlutann)
225g agavesíróp
safi og hýði af 2 sítrónum
2 msk kókosolía
2 msk maizenamjöl
1 tsk vanilludropar
1/2 tsk sjávarsaltflögur
Skraut
nokkrar brotnar piparkökur
fersk ber eða granateplakjarnar
nokkur mintulauf
Aðferð
Botninn
Byrjið á að setja piparkökurnar í matvinnsluvél og mala þar til þær verða að fínu mjöli.
Bætið smjörlíkinu út í og blandið í um 1/2 mín eða þar til þetta er orðið að deigi.
Þjappið niður í smurt form, ca 24 cm í þvermál og forbakið við 160°C í 6 mín.
Fyllingin
Hellið vatninu af kasjúhnetunum.
Setjið allt hráefni í blandara og blandið þar til silkimjúkt.
Hellið fyllingunni yfir forbakaða botninn og bakið við 160°C í 55mín.
Látið kólna í amk 2 klst í kæli áður en þið skreytið og njótið.
Geymist allt að 1 viku í kæli.
Vörur í uppskrift
Fleiri uppskriftir

Ribeye
Það er ekkert eins gott og vel eldað ribeye, hér er uppskrift að ribeye sem kitlar bragðlaukana.

Hakk og spagettí
Við kynnum fyrsta flokks íslenskt nautakjöt frá Íslandsnauti – fullkomnað með dásamlegri spagettí uppskrift Íslandsnaut býður aðeins fyrsta flokks íslenskt nautakjöt.

Smash style borgari
Smash hamborgarar hafa notið mikilla vinsælda og bjóða upp á bragðmikla útgáfu af hefðbundnum hamborgara.

