Til baka

Content
Jarðaberjasjeik
Þessi er flauelsmjúkur og ljúffengur.
Þessi er flauelsmjúkur og ljúffengur. Algjör lúxus sjeik sem krakkarnir elska.
Þeir sem vilja geta bætt einhverju næringarríku út í eins og lúku af spínati eða msk af hörfræolíu.... eða bara því sem ykkur langar í.
En svona er hann algjört nammi.
Skammtur fyrir fjóra.
Hráefnið fyrir 4
1 poki lífrænar kasjúhnetur (150g) - leggið í bleyti
7 dl vatn
400 - 500 g frosin jarðaber
1 tsk vanilla (duft eða dropar)
5 döðlur
og ef vill, 1 banani eða döðlur fyrir sætari sjeik
Aðferð
Hellið kasjúhnetunum í skál og hellið vatni yfir. Látið standa í bleyti í amk 1 klst en best er að leyfa þeim að standa yfir nótt.
Hellið íbleytivatninu af kasjúhnetunum.
Setjið kasjúhnetur, vatn og döðlur í blandara og blandið þar til silkimjúkt.
Bætið vanillu og frosnum jarðaberjum út í og blandið aftur.
Smakkið. Ef þið viljið hafa sjeikinn sætari bætið við einum banana eða döðlum.
Njótið í botn!
Vörur í uppskrift
Fleiri uppskriftir

Ribeye
Það er ekkert eins gott og vel eldað ribeye, hér er uppskrift að ribeye sem kitlar bragðlaukana.

Hakk og spagettí
Við kynnum fyrsta flokks íslenskt nautakjöt frá Íslandsnauti – fullkomnað með dásamlegri spagettí uppskrift Íslandsnaut býður aðeins fyrsta flokks íslenskt nautakjöt.

Smash style borgari
Smash hamborgarar hafa notið mikilla vinsælda og bjóða upp á bragðmikla útgáfu af hefðbundnum hamborgara.

