Til baka

Content
Hammari að Indverskum hætti
Gjörsamlega gómsætt gúmmelaði
Ristað súrdeigsbrauð með kasjúosti, avókadó og paprikumauki. Frábært í morgunmat, hádegismat eða í brunch.
Þessi uppskrift er hugsuð fyrir tvo. Það verður afgangur af smurostinum, svo ef þið viljið útbúa brauð fyrir fjóra, þá er nóg að tvöfalda allt nema smurostinn.
Hráefnið fyrir 4
4 120 gr Íslandsnaut hamborgarar
2 msk tikka masala-mauk
2 msk olía
4 ananassneiðar
8 sneiðar af mangó
4 stk naan-brauð
4 msk tikka masala-sósa
Salat
Laukhringir
4 steikt poppadoms
Aðferð
Penslið hamborgara með tikka masala-mauki og geymið við stofuhita í 1 klst. Steikið þá síðan í olíu á milliheitri pönnu í 2 mínútur á hvorri hlið. Steikið ananas og mangó á sömu pönnu í 1 mínútu. Hitið naan-brauð í brauðrist, skerið þau síðan til helminga og setjið tikka masala-sósu á neðri helminginn, toppið með salati og lauk. Leggið borgarann þar ofan á, síðan ananas, mangó og poppadoms og síðast hinn helminginn af naan-brauðinu. Berið fram með soðnum hrísgrjónum eða frönskum kartöflum.
Vörur í uppskrift
Fleiri uppskriftir

Ribeye
Það er ekkert eins gott og vel eldað ribeye, hér er uppskrift að ribeye sem kitlar bragðlaukana.

Hakk og spagettí
Við kynnum fyrsta flokks íslenskt nautakjöt frá Íslandsnauti – fullkomnað með dásamlegri spagettí uppskrift Íslandsnaut býður aðeins fyrsta flokks íslenskt nautakjöt.

Smash style borgari
Smash hamborgarar hafa notið mikilla vinsælda og bjóða upp á bragðmikla útgáfu af hefðbundnum hamborgara.

