Til baka

Content
Hafra- og chiagrautur
Staðgóður grautur með ávöxtum. Tilvalið að gera kvöldið áður.
Þennan graut má útbúa daginn áður, hann geymist í nokkra daga í ísskáp í loftþéttu boxi. Geymið grautinn í einu boxi og ávaxtamaukið í öðru.
Hráefnið fyrir 4
Grauturinn
2.5 dl jurtamjólk, t.d. Joya kókosdrykkur
1.5 dl tröllahafrar/haframjöl
2 msk chiafræ
1 tsk vanilla EÐA 1 msk vanillupróteinduft
1 tsk kanill
1/2 tsk sítrónusafi
nokkur saltkorn
Ávextir
1 epli, skorið í litla bita
2 dl frosin hindber
1-2 tsk engiferskot
1 banani skorinn í bita eða sneiðar
Aðferð
Grauturinn
Hrærið allt saman og látið standa í 10-15 mín eða í ísskáp yfir nótt.
Ávextirnir
Saxið epli smátt eða rífið með rifjárni og hrærið saman við hindber og engifer (t.d. hægt að nota matvinnsluvél til að léttsaxa, en ekki mauka alveg, eða bara nota gaffal og stappa). Látið standa í nokkrar mínútur eða geymið í ísskáp yfir nótt.
Berið fram með bananabitum. Njótið!
Vörur í uppskrift
Fleiri uppskriftir

Ribeye
Það er ekkert eins gott og vel eldað ribeye, hér er uppskrift að ribeye sem kitlar bragðlaukana.

Hakk og spagettí
Við kynnum fyrsta flokks íslenskt nautakjöt frá Íslandsnauti – fullkomnað með dásamlegri spagettí uppskrift Íslandsnaut býður aðeins fyrsta flokks íslenskt nautakjöt.

Smash style borgari
Smash hamborgarar hafa notið mikilla vinsælda og bjóða upp á bragðmikla útgáfu af hefðbundnum hamborgara.

