Til baka

Til baka

Content

Grænkálspestó

Bragðgott álegg á brauð og ljúffengt út á pasta eða pizzur.

Þetta bragðgóða pestó er frábær leið til að nýta grænkálið, hvort sem það er heimaræktað eða úr búðinni. Gott sem álegg, út á salöt, pasta og pizzur.

Hráefnið fyrir 4

5 grænkálsblöð, takið stilkinn af
5 góðar ólífur, takið steinana úr
50g möndlur, ristið eða bakið
2-4 döðlur, smátt saxaðar
1 hvítlauksrif
smá sjávarsalt
safi og hýði af 1 sítrónu
1/2 - 3/4 dl jómfrúarólífuolía

Aðferð

Byrjið á að rista eða baka möndlurnar við vægan hita.

Setjið svo allt nema ólífuolíuna í matvinnsluvél eða mortél og maukið/merjið.

Setjið í skál og hrærið ólífuolíunni út í.

Smakkið til með meira sjávarsalti og sítrónusafa ef vill.

Njótið!

Vörur í uppskrift
Þú finnur vörurnar okkar í búðum
Þú finnur vörurnar okkar í búðum
Þú finnur vörurnar okkar í búðum