Til baka

Content
Gomasio
Gomasio er mjög gott að strá út á salöt og skálar. Til dæmis tófú eða sushiskálar.
Hráefnið fyrir 4
1 dl svört sesamfræ (eða ljós)
1 dl möndlur
3 nori þara blöð
1 msk sjávarsalt flögur
2 tsk wasabi duft
1 tsk chili flögur
Aðferð
Hitið ofninnn í 170°C.
Setjið hneturnar og sesamfræin í ofnskúffu, dreifið úr þeim og ristið í um 5 mín.
Hrærið í blöndunni og ristið svo áfram í 5 mín.
Takið út og látið kólna.
Setjið möndlurnar í matvinnsluvél og malið gróflega. Bætið svo restinni af uppskriftinni út í og malið allt saman.
Passið bara að mala ekki of lengi svo þetta verði ekki að mauki.
Vörur í uppskrift
Fleiri uppskriftir

Ribeye
Það er ekkert eins gott og vel eldað ribeye, hér er uppskrift að ribeye sem kitlar bragðlaukana.

Hakk og spagettí
Við kynnum fyrsta flokks íslenskt nautakjöt frá Íslandsnauti – fullkomnað með dásamlegri spagettí uppskrift Íslandsnaut býður aðeins fyrsta flokks íslenskt nautakjöt.

Smash style borgari
Smash hamborgarar hafa notið mikilla vinsælda og bjóða upp á bragðmikla útgáfu af hefðbundnum hamborgara.

