Til baka

Content
Fylltar döðlur
Einfalt og ótrúlega gott nammi sem frábært er að eiga í frystinum.
Einfalt og ótrúlega gott nammi sem frábært er að eiga í frystinum. Við fyllum döðlur með lífræna hnetusmjörinu okkar og hjúpum svo með dökku súkkulaði. Sumir kalla þetta nammi snikkersdöðlur.
Hráefnið fyrir 4
12 stórar döðlur
2 msk gróft hnetusmjör frá Himneskt
3-4 msk salthnetur, gróft saxaðar
100g dökkt súkkulaði
Aðferð
Hrærið salthnetunum út í hnetusmjörið.
Skerið í döðlurnar og opnið aðeins.
Setjið ½ tsk af hnetusmjöri inn í hverja döðlu, magnið fer svolítið eftir hvað kemst inn í döðluna.
TRIKK: Setjið hnetusmjörið í sprautupoka, þannig er mjög auðvelt að fylla döðlurnar.
Þegar döðlurnar eru fylltar eru þær settar inn í kæli eða frysti í smá stund til að láta þær stífna.
Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði við vægan hita. Veljið súkkulaði sem ykkur finnst gott, t.d. dökkt eða ljósara eftir smekk.
Dýfið hverri döðlu í súkkulaðið, setjið síðan inn í frysti í 15 mín og þá eru þær tilbúnar til að njóta.
Geymst mjög vel í frysti.
Vörur í uppskrift
Fleiri uppskriftir

Ribeye
Það er ekkert eins gott og vel eldað ribeye, hér er uppskrift að ribeye sem kitlar bragðlaukana.

Hakk og spagettí
Við kynnum fyrsta flokks íslenskt nautakjöt frá Íslandsnauti – fullkomnað með dásamlegri spagettí uppskrift Íslandsnaut býður aðeins fyrsta flokks íslenskt nautakjöt.

Smash style borgari
Smash hamborgarar hafa notið mikilla vinsælda og bjóða upp á bragðmikla útgáfu af hefðbundnum hamborgara.

