Til baka

Til baka

Content

Brauð með krydduðum baunum

Ristað súrdeigsbrauð með krydduðum baunum er frábært í brunch eða hádegisverð.

Ristað súrdeigsbrauð með krydduðum baunum er frábært í brunch eða hádegisverð.

Hráefnið fyrir 4
Brauð með krydduðum baunum

2 súrdeigsbrauðsneiðar
1 krukka lífrænar bakaðar baunir
1 laukur 
1 msk ólífuolía
ferskur chilipipar eftir smekk, skorinn í þunnar sneiðar (verða þunnir hringir)
2 tsk tómatpúrra
1 tsk cumin duft
½ tsk reykt paprika
½ tsk sjávarsalt

Kryddjurtamauk

1 búnt steinselja, grófu stilkarnir skornir af, restin smátt söxuð
2 msk kapers
3 msk sítrónusafi
hýði af 2 sítrónum
2 hvítlauksrif, maukuð
½ tsk chili flögur
1 dl ólífuolía
smakkið til með smá sjávarsalti

Aðferð
Baunirnar

Steikið lauk í olíu í 10 mínútur.

Bætið nú ferskum chilipipar út á pönnuna ásamt tómatpúrru, cumin, reyktri papriku og salti og látið malla í 2-3 mínútur.

Setjið nú bökuðu baunirnar út á og leyfið að malla í 3-4 mínútur, eða þar til baunirnar eru heitar í gegn.

Berið fram á ristuðu brauði með kryddjurtamauki.

Kryddjurtamauk

Setjið allt hráefnið í blandara og maukið.

Vörur í uppskrift
Þú finnur vörurnar okkar í búðum
Þú finnur vörurnar okkar í búðum
Þú finnur vörurnar okkar í búðum