Til baka

Content
Brauðsalat
Salat sem er frábært á glænýtt súrdeigsbrauð.
Hráefnið fyrir 4
1 dós soðnar kjúklingabaunir (230g)
1 stórt avókadó eða tvö lítil
2 msk sítrónusafi
2 msk majónes
2 tsk gróft sinnep, lífrænt
2 msk sýrðar gúrkur, smátt saxaðar
1 tsk jalapenjo, smátt saxað (má sleppa)
smá sjávarsaltflögur + svartur pipar
½ dl sellerístilkur, smátt skorinn
½ dl rauðlaukur, smátt skorinn
½ dl rauð paprika, smátt skorin
½ dl agúrka, smátt skorin
Aðferð
Stappið avókadó og kjúklingabaunir saman með gaffli.
Bætið sítrónusafa, mayo, sinnepi, sýrðum gúrkum og jalapenjo saman við, ásamt salti og pipar.
Bætið smátt skornu grænmetinu út í og smakkið til með salti og pipar.
Geymist í lokuðu íláti í kæli í 3 daga.
Berið fram með góðu brauði eða maískökum.
Vörur í uppskrift
Fleiri uppskriftir

Ribeye
Það er ekkert eins gott og vel eldað ribeye, hér er uppskrift að ribeye sem kitlar bragðlaukana.

Hakk og spagettí
Við kynnum fyrsta flokks íslenskt nautakjöt frá Íslandsnauti – fullkomnað með dásamlegri spagettí uppskrift Íslandsnaut býður aðeins fyrsta flokks íslenskt nautakjöt.

Smash style borgari
Smash hamborgarar hafa notið mikilla vinsælda og bjóða upp á bragðmikla útgáfu af hefðbundnum hamborgara.

