Skoða vöruúrval

Bjór

Staropramen 0.0%

Frábær ljós lagerbjór án áfengis frá Staropramen, ferskur og frískandi með mildu maltbragði og léttum humlakeim. Staropramen 0.0% hentar vel þegar fólk vill njóta bragðsins og stemningarinnar sem fylgir góðum bjór, án áfengis.

Ljós lager er vinsælasti flokkur bjórs í dag og á rætur sínar að rekja til borgarinnar Pilsen í Tékklandi. Þetta eru undirgerjaðir bjórar og eru eins og nafnið gefur til kynna ljósir eða gullnir á lit, yfirleitt bragðmildir og þægilegir til drykkjar.

Staropramen hefur framleitt bjór frá árinu 1869 og stendur nafnið fyrir „Old Spring“. Staropramen 0.0% byggir á sömu hefð og tékknesku bruggmeistararnir eru þekktir fyrir, en er sérstaklega bruggaður fyrir þau sem vilja áfengislausan valkost með klassísku lagerbragði.

Styrkleiki

0 %

Magn

330 ml

Upplýsingar

Land

Tékkland

Framleiðandi

Molson Coors

Umbúðir

Glerflaska