Til baka

Morgungrautar hlaðborð
Að borða morgungraut saman, þegar tími gefst til, getur verið fín samverustund áður en allir halda út í daginn sitt í hvora áttina. En ekki hafa allir sama smekk. Sumum finnst einfaldleikinn bestur og vilja helst bara hefðbundinn hafragraut með mjólk og kanil, á meðan aðrir vilja alltaf vera að prófa eitthvað nýtt og spennandi.
Í staðinn fyrir að bera fram margar tegundir af morgunmat getur verið sniðugt að útbúa einfaldan hafragraut og bera hann fram í pottinum. Hafa síðan meðlæti til hliðar sem hver og einn velur í sína skál, t.d. mjólk, kanilsykur og eitthvað bragðmeira að auki.
Þetta getur verið mjög einfalt eins og að hafa opna hnetusmjörskrukku á borðinu og skera eitt epli í bita. Eða að rista fræ og hnetur á pönnu, bera fram ferska ávexti/ber í skál, eða búa til girnilegt mauk úr frosnum berjum.
Svo getur hver skammtað sér graut í sína skál og fengið sér "toppings" eftir sínum smekk. Kanilsykur og mjólk, eða eitthvað úr öllum meðlætisskálunum og allt þar á milli.
Svo getur það jafnvel gerst með tímanum að þeir allra íhaldsömustu freistist til að prufa eitthvað nýtt.
Hér er hugmynd að einföldu en góðu morgungrautar hlaðborði.

Tilkynning frá Aðföngum vegna innköllunar á nýrnabaunum
Með hliðsjón af öryggi og velferð neytenda hafa Aðföng ákveðið að taka úr sölu og innkalla Himneskt Lífrænar nýrnabaunir. Innköllunin er tilkomin vegna hættu á að varnarefnið carbofuran greinist í vörunni og varðar hún eingöngu best fyrir dagsetningu 03/04/2027.

Ribeye & rauðvín: fullkomin samsetning með Anaciano No 10
Ribeye nautalundir með hvítlaukssmjörsósu – Fullkomin uppskrift til pörunar við Anaciano No 10

Anaciano No 10 – toppvín frá Rioja: ríkulegt bragð og fágun
Við kynnum með stolti nýtt vín frá Spáni: Anaciano No 10