Til baka

Content
Rauðrófu og kjúklingabaunaskál
Ljúffeng og nærandi skál stútfull af grænmeti ásamt kjúklingabaunum og dásamlegri dressingu. Við notum himnesku kjúklingabaunirnar og flottu ítölsku ólífuolíuna til að útbúa bragðgóðar kjúklingabaunir í skálina. Grófa sinnepið okkar er frábært í dressinguna ásamt himnesku hunangi.
Ljúffeng og nærandi skál stútfull af grænmeti ásamt kjúklingabaunum og dásamlegri dressingu. Við notum himnesku kjúklingabaunirnar og flottu ítölsku ólífuolíuna til að útbúa bragðgóðar kjúklingabaunir í skálina. Grófa sinnepið okkar er frábært í dressinguna ásamt himnesku hunangi.
Hráefnið fyrir 4
Grænmeti
300g rauðrófur, afhýddar og skornar í báta
1 tsk fennelduft
½ tsk cuminduft
½ tsk sjávarsalt flögur
300g blómkál, skorið í passleg blóm eða bita
1 tsk garam masala
½ tsk sjávarsaltflögur
1 dós lífrænar forsoðnar kjúklingabaunir, (hellið vökvanum af)
1 tsk reykt paprika
½ tsk chili flögur
1 tsk sjávarsalt flögur
2-3 msk ólífuolía
1 avókadó, afhýtt, steinninn fjarlægður og skorið í fernt
2 gulrætur, skornar julienne i mjög þunna strimla
kjarnarnir úr ½ granatepli
1 hnefi spínat eða annað grænt kál/salat
Sósa
100g sýrður rjómi eða vegan sýrður rjómi
1 hvítlauksrif, pressað
1 tsk sinnep
1 tsk hunang (notið agave ef vegan)
½ tsk sjávarsaltflögur
Aðferð
Hitið ofninn í 200°C.
Setjið bökunarpappír í ofnskúffu, raðið rauðrófunum á 1/3 hluta ofnskúffunnar, blómkálinu á 1/3 hluta og kjúklingabaununum á 1/3 hluta.
Kryddið rauðrófurnar með fennel, cumin og salti, blómkálið með garam masala og salti, kjúklingabaunirnar með reyktri papriku, chiliflögum og salti og endið á að skvetta olíunni yfir allt.
Bakið við 200°C í 15 – 20 mín.
Á meðan grænmetið og baunirnar eru að bakast þá hrærið öllu saman sem fer í sósuna, skerið gulrætur, avókadó og gerið granateplakjarnana tilbúna.
Skiptið öllu í 2 skálar, setjið sósuna yfir og njótið.
Vörur í uppskrift
Fleiri uppskriftir

Ribeye
Það er ekkert eins gott og vel eldað ribeye, hér er uppskrift að ribeye sem kitlar bragðlaukana.

Hakk og spagettí
Við kynnum fyrsta flokks íslenskt nautakjöt frá Íslandsnauti – fullkomnað með dásamlegri spagettí uppskrift Íslandsnaut býður aðeins fyrsta flokks íslenskt nautakjöt.

Smash style borgari
Smash hamborgarar hafa notið mikilla vinsælda og bjóða upp á bragðmikla útgáfu af hefðbundnum hamborgara.

