Til baka

Ekta heitt súkkulaði

Ekta heitt súkkulaði

Vegan

Vegan

Vegan

Sykur

Sykur

Mjólkurlaust

Mjólkurlaust

Mjólkurlaust

Egglaus

Egglaus

Egglaus

Glútenlaus

Glútenlaus

Glútenlaus

Auðvelt

Auðvelt

Ekta heitt súkkulaði er dásamlegt með piparkökum eða smákökum í skammdeginu og jólaundirbúningnum. Í þessa uppskrift notum við dökkt 71% súkkulaði sem gefur ríkulegt súkkulaðibragð, en hefur minna hlutfall sykurs en hefðbundið bökunarsúkkulaði og er því hóflega sætt á bragðið. Þeir sem vilja vegan kakó nota vegan rjóma, t.d. hafrarjóma, þeytta kókosmjólk eða annan jurtarjóma.

Hráefni
Hráefni

100g dökkt súkkulaði (71%)
6 dl mjólk að eigin vali, t.d. haframjólk
hafrarjómi eða kókosmjólk til að þeyta 
(eða rjómi að eigin vali)

Aðferð
Aðferð

Saxið súkkulaðið niður og setjið í pott ásamt 1 dl haframjólk. Hitið við vægan hita og hrærið í á meðan súkkulaðið bráðnar. Hellið restinni af mjólkinni út í og hitið. Nú er súkkulaðið tilbúið. Ef ykkur finnst það mega vera sætara má hræra 1 tsk af hlynsírópi eða annarri sætu út í. Hellið í glös. Hellið annað hvort smávegis af kaldri haframjólk út í til að kæla, eða setjið ykkar uppáhalds þeytta rjóma út á, t.d. þeyttan hafrarjóma.

Þeytt kókosmjólk er líka vinsæl í vegan góðgæti:
Geymið dós af kókosmjólk inn í ísskáp. Feitari parturinn stífnar og skilst frá þynnri vökvanum. Takið feita hlutann (geymið restina til að nota í matreiðslu, bakstur eða í smoothie) og hrærið hann aðeins upp áður en hann er settur í rjómasprautu með gashylki, eða þeyttur í hrærivél í nokkrar mínútur. Mörgum finnst gott að bragðbæta með vanillu eða smá sykri, það er smekksatriði. Njótið!

Viltu vita meira um Aðföng?

Aðföng er innkaupa- og dreifingarmiðstöð á smásölu- og stórnotendamarkaði. Starfsemi fyrirtækisins felst í innkaupum, birgðahaldi og dreifingu fyrir verslanir Bónus, Hagkaups, Olís og Stórkaups.