Í varúðarskyni hafa Aðföng ákveðið að innkalla Euro Shopper hindber í 500 gramma pokum. Ákvörðun um þetta var tekin í kjölfar tilkynningar frá ICA í Svíþjóð um að þar hafi greinst Norovírus í vörunni. Varan var í dreifingu í verslunum Bónus, Hagkaupa og 10-11 og hefur verið tekin úr sölu.
Innköllunin gildir um allar best fyrir dagsetningar af vörunni.
Neytendur sem kunna að eiga vöruna til eru beðnir um að hafa samband við Aðföng í síma 530-5645 eða í gegnum netfangið gaedastjori@adfong.is. Einnig má skila vörunni í verslunina þar sem hún var keypt gegn fullri endurgreiðslu.
Nánari upplýsingar veitir:
Baldvin Valgarðsson, gæðastjóri, í síma 530-5645

