Fréttir
29.04.09
Ađföng velur veflausnir Allra Átta
Aðföng hefur nú gert samning við Allra Átta um uppsetningu nýrrar heimasíðu fyrirtækisins.
Aðföng er ein stærsta og fullkomnasta birgða-og dreifingarstöð landsins.
Starfsemi fyrirtækisins felst í innkaupum, birgðahaldi og dreifingu fyrir matvöruverslanir Haga.
Aðföng ætla sér að nýta nýja vefinn til að kynna starfsemi fyrirtækisins.
Mynd: Sveinn Thorarensen, söluráðgjafi Allra Átta (til hægri), handsalar hér samninginn með Bergi Bergssyni, verkefnastjóra Aðfanga (til vinstri). Sveinn skellti sér í vinnuvesti til að uppfylla öryggisstaðla á lager. Í bakgrunni má sjá hluta af gríðarlega stórum lager Aðfanga.

